8 Apríl 2009 12:00

Þrjátíu og fimm voru staðnir að hraðakstri á Garðaflöt í Garðabæ í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 35 ökumanna mynduð á Garðaflöt en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Smáraflöt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og því óku 66% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tólf óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 55.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Garðaflöt og þá var niðurstaðan skömminni skárri. Þá óku 41% of hratt eða yfir afskiptahraða en meðalhraði hinna brotlegu var hinsvegar örlítið hærri í fyrra, eða rúmlega 48 km/klst. Ljóst er að sveitarfélagið þarf að huga að úrbótum á Garðaflöt.