1 Júlí 2020 12:33

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Garðahraunsvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Garðahraunsveg í vesturátt, við Hraunprýði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en helmingur ökumanna, eða 75%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 52 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73, en hann og þrír aðrir ökumenn eiga yfir höfði sér ökuleyfissviptingu fyrir hraðakstur á Garðahraunsvegi í gær.

Vöktun lögreglunnar á Garðahraunsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að súld og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.