15 Apríl 2021 10:00

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Garðahraunsvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Garðahraunsveg í vesturátt, við Hraunprýði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 64%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar á Garðahraunsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.