15 Júlí 2024 14:19
Brot 54 ökumanna voru mynduð á Grensásvegi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grensásveg í suðurátt, að Hvammsgerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 246 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.
Vöktun lögreglunnar á Grensásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.