20 Janúar 2021 10:55

Brot 75 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, við Arnarneslæk. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.012 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Ellefu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 107.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.