7 Nóvember 2016 17:30

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Hallsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hallsveg í vesturátt, við Þverveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 39 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Hallsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.