20 Maí 2008 12:00

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Hjarðarhaga í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjarðarhaga í suðurátt, að Tómasarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 38 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 55.      

Eftirlit lögreglunnar á Hjarðarhaga er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Hjarðarhaga var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.