20 Mars 2009 12:00

Nokkuð bar á hraðakstri á höfuðborgarsvæðinu í gær og voru allnokkrir ökumenn teknir fyrir þær sakir. Grófasta brotið var framið á Gullinbrú í Grafarvogi á móts við bensínstöð Olís en þar mældist bíll 18 ára pilts á 132 km hraða. Fleiri piltar á líku reki voru staðnir að hraðakstri í gær en það voru líka eldri og reyndari ökumenn. Rúmlega fimmtugur karl var tekinn í Ártúnsbrekkunni en hann ók bíl sínum á 114 km hraða. Loks má nefna að karl á fertugsaldri var stöðvaður á Reykjanesbraut í Garðabæ. Bíll hans mældist á 128 km hraða en viðkomandi er síbrotamaður í umferðinni og hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.