13 September 2019 11:15

Brot 93 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 11. september til föstudagsins 13. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 10.970 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.