10 Mars 2021 12:19

Brot 117 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 8. mars til miðvikudagsins 10. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á tveimur sólarhringum fóru 10.441 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 89. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.