2 Febrúar 2023 15:02

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá mánudeginum 30. janúar til þriðjudagsins 31. janúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á sextán og hálfri klukkustund fór 4.681 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.