19 Ágúst 2016 11:49

Brot 140 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, að Bústaðavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 666 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 113.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.