29 Janúar 2010 12:00

Brot 394 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í gær og  í fyrradag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót. Á tuttugu og átta klukkustundum fóru 19.307 ökutæki þessa akstursleið og því óku um 2% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimmtíu og sjö óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 113. Á sama tímabili óku þrír gegn rauðu ljósi á þessari akstursleið.