13 Ágúst 2018 16:14

Brot 100 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá föstudeginum 10. ágúst til mánudagsins 13. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu. Á þremur sólarhringum fóru 18.750 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.