11 Apríl 2016 15:11
Brot 45 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, á móts við Kársnesbraut 19. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 211 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.
Vöktun lögreglunnar á Kársnesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.