26 Mars 2025 12:43

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, á móts við Kársnesbraut 37. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 233 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar á Kársnesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.