17 Mars 2010 12:00

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Kirkjuvöllum í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kirkjuvelli í norðurátt, norðan Berjavalla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Kirkjuvöllum var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Kirkjuvöllum en þá óku hlutfallslega jafn margir, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar allt önnur og verri, eða 77%.