9 Júlí 2024 15:10

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í vesturátt, við Garðsstaði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 127 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.