19 Júlí 2017 15:40

Brot 113 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, að N1 Fossvogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 995 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 111.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.