2 Júlí 2025 17:40

Brot 322 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í norðurátt, á milli Miklubrautar og Háaleitsbrautar á móts við Álftamýri 24-30. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 783 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 49 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 74, en sá og ellefu aðrir ökumenn eiga yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda vegna hraðaksturs á þessum vegarkafla.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.