13 September 2022 09:29

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Kristnibraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í vesturátt, á móts við Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.