1 Júní 2016 20:02

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í suðurátt, á móts við Langholtsveg 160. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 43 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.