7 Júní 2023 10:49

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Laugarásvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugarásveg í suðurátt, á móts við Laugarásveg 30. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 92 ökutæki þessa akstursleið og því ók um helmingur ökumanna, eða 49%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Laugarásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.