10 Desember 2010 12:00

Brot 97 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á móts við Rauðarárstíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 1.101 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjö óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86.