7 Desember 2020 12:11

Brot 91 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 30. nóvember til föstudagsins 4. desember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á fjórum sólarhringum fóru 14.954 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjö óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 100. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.