22 Janúar 2025 15:32

Brot 319 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 20. janúar til miðvikudagsins 22. janúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á tveimur sólarhringum fóru 13.803 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimm óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 107. Fimm ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.