30 Janúar 2025 11:06

Brot 137 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 27. janúar til fimmtudagsins 30. janúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á þremur sólarhringum fóru 14.949 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 99. Tólf ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.