5 September 2024 13:02
Brot 12 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í austurátt, að Starengi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 122 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.
Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.