17 Febrúar 2012 12:00

Brot 51 ökumanns var myndað á Neshaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, við Melaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 134 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Neshaga er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.