4 Nóvember 2009 12:00

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Njarðargötu í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í norðurátt, að Laufásvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 181 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Eftirlit lögreglunnar á Njarðargötu var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum við götuna en þeir hafa kvartað undan hraðakstri.