10 Júlí 2024 15:16
Brot 24 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, að Fornuströnd. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 145 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.
Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.