26 Febrúar 2015 14:25

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, við Fornuströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 106 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 78.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd, en talsverð snjókoma var á meðan henni stóð, er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.