24 Október 2019 07:52

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, á móts við Látraströnd 14. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 106 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.