5 September 2024 12:09

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Réttarholtsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Réttarholtsveg í norðurátt, að Langagerði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar á Réttarholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.