13 Júlí 2016 10:54

Brot 163 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, að Urriðaholtsstræti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.367 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 113.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.