20 Mars 2020 13:42

Brot 21 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, að Hvassahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 220 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 106 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 117.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og mikill hliðarvindur var á meðan hraðamælingunni stóð og akstursaðstæður því slæmar.