10 Ágúst 2020 14:34

Brot 72 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, að Hvassahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 532 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Tólf óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 139.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.