22 Janúar 2025 15:49
Brot 92 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Straum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 423 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 84.
Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.