8 Apríl 2016 15:56

Brot 71 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, í Hvassahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 413 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Átján óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 124.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.