16 September 2016 16:02

Brot 61 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Brunnhóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 448 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Níu óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 117.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.