22 Desember 2017 14:47

Brot 58 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, að Straumsvík. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 428 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sex óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 108.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að úrkoma og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.