19 Nóvember 2021 10:08

Brot 100 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, á móts við Smáralind. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.419 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.