29 Janúar 2025 15:17
Brot 5 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í norðurátt, á móts við Reykjavíkurveg 31. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 272 ökutæki þessa akstursleið og því óku örfáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 50 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.
Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.