3 Apríl 2025 14:09

Brot 79 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í norðurrátt, á milli Stakkahrauns og Dalshrauns. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 378 ökutæki þessa akstursleið og því ók um  fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.