8 Nóvember 2017 15:43

Brot 55 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í suðurátt, við Stakkahraun. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 272 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á með hraðamælingunni stóð.