12 September 2019 15:36

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Reynisvatnsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reynisvatnsveg í vesturátt, við Kapellustíg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 29 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en helmingur ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 70 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 97.

Vöktun lögreglunnar á Reynisvatnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.