15 Maí 2018 10:02

Brot 636 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá föstudeginum 11. maí til mánudagsins 14. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur dögum fóru 20.073 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Átján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 147.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.