4 Apríl 2019 08:58

Brot 29 ökumanna voru mynduð á Seljabraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Seljabraut í vesturátt, á móts við Seljabraut 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Seljabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.