13 September 2024 10:28

Brot 39 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 80. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 59 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 66%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.