2 Nóvember 2016 17:41

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Stórhöfða í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stórhöfða í austurátt, á móts við Stórhöfða 33. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 144 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Stórhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.